Tónlist

Ný plata frá Beastie Boys

Undirbúa nýja plötu sem mun fylgja eftir The Mix-Up.
Undirbúa nýja plötu sem mun fylgja eftir The Mix-Up.

Hljómsveitin Beastie Boys er að undirbúa nýja plötu sem mun fylgja eftir The Mix-Up sem kom út í fyrra. Á henni var ekkert sungið en raunin verður önnur á þessari plötu. „Við erum í miðjum upptökum,“ sagði Adam Horovitz. „Við vonumst til að geta gefið hana út á næsta ári. Það er mikið af röddum í henni og mikið af orðum. Hún er líka pólitísk.“

Auk vinnslu við plötuna er sveitin á leiðinni í tónleikaferð um Bandaríkin undir yfirskriftinni Get Out and Vote þar sem fólk er hvatt til að taka þátt í forsetakosningunum í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.