Körfubolti

NBA: Detroit jafnaði metin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Chauncey Billups og Antonio McDyess eru miklir vinir.
Chauncey Billups og Antonio McDyess eru miklir vinir. Nordic Photos / Getty Images

Detroit vann í nótt öruggan nítján stiga sigur á Boston í fjórða leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Þar með er staðan 2-2 í rimmu liðanna.

Antonio McDyess átti stórleik fyrir Detroit í nótt en hann skoraði 21 stig og tók sextán fráköst. McDyess er 33 ára og hefur margoft átt við meiðsli að stríða á ferli sínum. Margir telja að þetta hafi verið hans besta frammistaða í úrslitakeppninni í áratug.

„Dice hefur verið okkar besti leikmaður í úrslitakeppninni og nærumst við allir á orkunni hans," sagði Chauncey Billups. „Það er augljóst hversu mikið hann hefur lagt á sig og ekki annað hægt en að leggja sig jafn mikið fram."

Fimmti leikur liðanna fer fram í Boston annað kvöld en nú hafa bæði lið unnið hvort sinn leikinn á heimavelli, sem og á útivelli.

Skotnýting Boston var skelfilega í leiknum en Kevin Garnett, Paul Pierce og Ray Allen misnotuðu samtals fyrstu sjö skotin sín í leiknum og hittu úr alls ellefu af 38 skotum utan af velli.

Garnett og Pierce voru með sextán stig hvor og Allen var með ellefu. Richard Hamilton skoraði 20 stig fyrir Detroit og Rasheed Wallace fjórtán sem og Jason Maxiell.

Detroit skoraði fyrstu tíu stigin í leiknum og hófu annan leikhluta með 11-2 spretti. Engu að síður var forysta liðsins aðeins fjögur stig í hálfleik, 43-39.

Detroit hafði áfram frumkvæðið í seinni hálfleik en Boston náði að minnka muninn mest í fimm stig þegar tæpar fimm mínútur voru til leiksloka en þá stakk Detroit af og vann öruggan nítján stiga sigur.

Í kvöld er á dagskrá fjórði leikur LA Lakers og San Antonio Spurs og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport í kvöld.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×