Menning

Ólöf opnar sýningu

Málverk eftir Ólöfu Björgu Björnsdóttur.
Málverk eftir Ólöfu Björgu Björnsdóttur.

Sýning á verkum myndlistarkonunnar Ólafar Bjargar Björnsdóttur verður opnuð í dag kl. 17 í Artóteki, sem er á jarðhæð aðalsafns Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Nefnist sýningin „Áttavitinn sjálfsnánd og mild mýkingarefni".

Ólöf Björg útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2001 með málun sem aðalgrein, og vorið 2007 lauk hún kennaranámi frá sama skóla. Ólöf Björg hefur verið virk í myndlistarlífi landsins frá útskrift; hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga og uppákomum ýmiss konar. Hún átti meðal annars verk á Sequences-hátíðinni árið 2007 og á afmælissýningu Hafnarfjarðar sem sett var upp í Hafnarborg nú fyrr á árinu. Málverk Ólafar Bjargar eru í senn kaótísk og nákvæm og fá litir að njóta sín til fulls. Hún hefur þó ekki einskorðað listsköpun sína við málverkið heldur hefur hún einnig unnið með aðra miðla, til að mynda innsetningar, og má í því samhengi nefna að á sýningunni í Artóteki má einmitt sjá bæði málverk og innsetningu. Sýningin stendur til 19. október.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.