Viðskipti erlent

Bush til bjargar fasteignalánamarkaðnum

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna. Reiknað er með að hann komi með tillögur til að draga úr vanskilum á annars flokks fasteignalánum síðar í dag.
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna. Reiknað er með að hann komi með tillögur til að draga úr vanskilum á annars flokks fasteignalánum síðar í dag. Mynd/Reuters
Búist er við að George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kynni í dag aðgerðir sem eigi að minnka líkurnar á því að einstaklingar með litla greiðslugetu lendi í vanskilum með fasteignalán sín. Mikil vanskil hjá þessum einstaklingum hefur leitt til mikils samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði og valdið titringi á fjármálamörkuðum.

Lánin kallast annars flokks lán (e. sub-prime) og eru áhættusamari en önnur lán þar sem lántakar eru með lélegt greiðsluhæfi og með litlar tekjur. Þeir hafa því ekki getað tekið hefðbundið fasteignalán hjá fjármálafyrirtækjum.

Að sögn bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal er sömuleiðis reiknað með að Bush ræðir leiðir til að hindra vanskil sem þessi. Á meðal nokkurra hugmynda sem talið er líklegt að Bush mæli fyrir eru ríkistryggð fasteignalán og tillögur að reglum sem skrúfa eigi fyrir áhættusamar lánveitingar fjármálafyrirtækja.

Blaðið bendir á að mikil vanskil á annars flokks fasteignalánum hafi orðið til þess að vextir þeirra hafi hækkað og hafi lántakar því lent í erfiðleikum með afborganir. Það hefur aftur leitt til mikils samdráttar hjá fjármálafyrirtækjum sem hafa einbeitt sér að þessum geira í Bandaríkjunum. Samdrátturinn hefur aftur leitt til mikilla hræringa á fjármálamörkuðum þar sem fjármálafyrirtæki hafa fest sér lánasöfn sem þessi víða um heim.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×