Golf

Goosen í 86. sæti á FedEx listanum - 70 efstu áfram eftir þessa viku

Retief Goosen.
Retief Goosen. NordicPhotos/GettyImages

Þrjár vikur eru eftir af FedEx bikarnum og Retief Goosen þarf að spila vel þessa vikuna til að vera meðal keppenda í næstu viku. Hann er sem stendur í 86. sæti og þarf að bæta sig um a.m.k. 16 sæti til að verða með í Boston. Hann er í 17. sæti á heimslistanum og er sá eini sem er í 20 efstu sætunum sem er ekki á meðal þeirra 70 efstu.

Það þarf kannski ekki kraftaverk til að hann verði með í næstu viku en hann þarf að spila vel og enda í fimm efstu sætunum. Þá gefum við okkur að þeir sem eru í bráttunni við hann verði ekki á meðal þeirra efstu.

Deutshe Bank mótið fer fram í Boston á velli sem Arnold Palmer hannaði og lílegir til að spila vel þarna eru Vijay Singh sem á vallarmetið en hann spilaði á 61 höggi. Annar sem kemur vel til greina er Tiger Woods en hann kemur ferskur til leiks eftir að hafa tekið sér pásu frá golfi í síðustu viku. Þeir tveir hafa báðir unnið þetta mót áður. Þeir verða saman í holli fyrstu tvo dagana ásamt Phil Mickelson, sem er að spila í fyrsta skipti á þessu móti.

Kylfingur.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×