Viðskipti erlent

Stýrivaxtahækkun líkleg í Bretlandi

Englandsbanki gaf í skyn í dag að stýrivaxtahækkun liggi í loftinu. Bankinn var undir miklum þrýstingi á fyrri hluta árs að hækka stýrivexti til að ná verðbólgu niður. Hann brást við með stýrivaxtahækkunum á árinu og standa vextirnir í Bretlandi nú í 5,75 prósentum. Stýrivaxtahækkanir fara fyrir brjóstið á verslanaeigendum.

Í ársfjórðungsriti bankans segir að verðbólga muni ekki fara niður að tveggja prósenta viðmörkum seðlabankans á næstu tveimur árum verði stýrivöxtum haldið óbreyttum. Verði vextirnir hins vegar hækkaðir um fjórðung úr prósenti er gert ráð fyrir að þeir verði við mörkin.

Gert er ráð fyrir því að bankinn hækki vextina á næstu mánuðum, að sögn breska blaðsins Guardian.

Stýrivaxtahækkanir samhliða votviðri í sumar urðu þess valdandi að smásala jókst um 1,2 prósent í Bretlandi í júlí, sem er talsverður samdráttur á milli mánaða. Þá er þetta helmingi minni vöxtur í verslun en á sama tíma fyrir ári og hefur hann ekki verið hægari á árinu. Verslanaeigendur segja veðrið eiga hlut að máli enda hafi sumarklæðnaður selst illa.

Fréttastofa Reuters bendir á að hátt stýrivaxtastig í Bretlandi sé þyrnir í augum verslanaeigenda enda hefur það valdið því að neytendur halda að sér höndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×