Viðskipti erlent

Olíuverð ekki hærra á árinu

Olíuvinnslustöð. Skærur við olíuvinnslustöðvar í Nígeríu og mikil eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum hefur valdið verðhækkunum á hráolíu.
Olíuvinnslustöð. Skærur við olíuvinnslustöðvar í Nígeríu og mikil eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum hefur valdið verðhækkunum á hráolíu.

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði á helstu fjármálamörkuðum í dag vegna óeirða við olíuvinnslustöðvar í Nígeríu í vikunni. Olíuverðið stendur í rúmum 75 dölum á tunnu og hefur ekki verið hærra síðan í ágúst í fyrra en þá var það nýkomið úr methæðum. Greinendur gera ráð fyrir frekari hækkunum.

Olíuverðið tók kipp um miðjan júlí í fyrra eftir að Ísraelsher réðst inn í Suður-Líbanon. Það fór hæst í 78,48 dali á tunnu og sat við það verðbil þar til vopnahléi var komið á í ágúst.

Þá hefur lítið framboð á markaði í Bandaríkjunum og mikil eftirspurn eftir eldsneyti vestanhafs nú þegar sumarið er hafið ýtt verðinu upp. Þrátt fyrir að greinendur telji að olíuverðið geti hækkað á næstunni telja þeir að eitthvað muni draga úr eftirspurn eftir eldsneyti í Bandaríkjunum þar eð hámarkinu sé iðulega náð á Þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí, sem var á miðvikudag.

Árásir skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu hafa komið illa við olíuframleiðslu í landinu en vinnsla þar í landi hefur dregist saman um fjórðung.

Verð á Brent Norðursjávarolíu hækkaði um 28 sent á markaði í Lundúnum í morgun og fór í 75,10 dali á tunnu. Verð á framvirkum samningu með Norðursjávarolíuna hækkaði hins vegar talsvert og fór í 75,21 dal á tunnu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×