Viðskipti erlent

Hunter skoðar yfirtökutilboð í Dobbies

Skoski auðkýfingurinn Tom Hunter.
Skoski auðkýfingurinn Tom Hunter.

Skoski auðkýfingurinn sir Tom Hunter hefur fengið fjárfestingabankann Rothschild til ráðgjafar um yfirtökutilboð í garðvörukeðjuna Dobbies á móti bresku verslanakeðjunni Tesco. Hunter fer með fjórðung bréfa í keðjunni og getur með því móti komið í veg fyrir yfirtökutilboðið.

Tesco gerði yfirtökutilboð í Dobbies upp á 155,6 milljónir punda, jafnvirði tæpra 20 milljarða króna, um miðjan mánuðinn. Tilboðið hljóðar upp á 1.500 pens á hlut.

Hunter, sem hefur síðastliðinn hálfan mánuð aukið við hlut sinn í Dobbies úr um 10 prósentum í rúman fjórðung, hefur greitt allt upp undir rúm 1.800 pund fyrir bréfin. Ekki liggur fyrir hversu mikið hann greiddi fyrir síðustu bréfin en breska blaðið Herald sagði fyrir helgina að þegar hluthafar sjái hversu háar fjárhæðir hann er tilbúinn til að reiða af hendi til að koma í veg fyrir kaup Tesco þá sé ólíklegt að hluthafar garðvörukeðjunnar taki boði Tesco.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×