Viðskipti erlent

Bréf Blackstone hækka um 30 prósent

Stephen Schwarzman, annar af stofnendum bandaríska fjárfestingasjóðsins Blackstone Group.
Stephen Schwarzman, annar af stofnendum bandaríska fjárfestingasjóðsins Blackstone Group. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa í bandaríska fjárfestingasjóðnum Blackstone Group hækkaði talsvert í fyrstu viðskiptum með bréf í félaginu i kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í dag. Sjóðurinn seldi hlutabréf fyrir 4,13 milljarða dala, jafnvirði 258 milljarða íslenskra króna, í gær.

Útboðsgengi bréfa í fjárfestingasjóðnum var 31 dalur á hlut en fór hæst í 45 dali á hlut, sem jafngildir um 45 prósenta hækkun á gengi bréfanna. Það lækkaði nokkuð skömmu síðar og stendur í og við 40 dölum. Hækkunin er engu að síður rífleg, níu dalir sem jafngildir tæplega 30 prósenta hækkun.

Hluti fjárhæðarinnar sem safnaðist í útboðinu verður notað í frekari fyrirtækjakaupum auk þess sem stofnendur sjóðsins, Stephen Schwarzman og Peter G. Peterson, fá saman 2,33 milljarða dali, jafnvirði 145,6 milljarða íslenskra króna. Þeir stofnuðu sjóðinn eftir að þeir yfirgáfu saman fjárfestingabankann Lehman Brothers árið 1985 með 400.000 dali í vasanum. Blackstone Group er í dag eitt af stærstu fjárfestingafélögum í heimi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×