Viðskipti erlent

Útboð í Blackstone hefst í dag

Frá einum viðskiptadegi í Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum.
Frá einum viðskiptadegi í Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum.

Frumútboð hefst síðdegis í dag á bréfum í bandaríska fjárfestingasjóðum Blackstone Group í Bandaríkjunum. Gert er ráð fyrir því að sjóðurinn taki inn á milli 3,87 til 4,14 milljarða bandaríkjadala á sölu bréfanna. Það jafngildir tæpri 241 til 257 milljörðum íslenskra króna. Almenn viðskipti hefjast með bréf í félaginu að lokinni skráningu þess í Kauphöllina í New York á morgun.

Blackstone Group er einn af stærstu fjárfestingasjóðum heims og á stórar eignir víða um heim.

Morgan Stanley, Citigroup Inc. og 15 aðrir fjárfestingabanknar sáu um útboðið og skráningu bréfanna sem felur í sér sölu á 133,3 milljón hlutum á genginu 29 til 31 dalur á hlut. Verði gengi bréfanna í efri mörkum verður þetta sjötta stærsta hlutafjárútboð með bréf í félagi í Bandaríkjunum. Þá verður þetta sömuleiðis stærsta hlutfjárútboð vestra síðastliðin fimm ár.

Bankarnir taka helmingi minna í þjónustugjöld og laun fyrir skráningu bréfa Blackstone en þegar þau höndla með bréf annarra fyrirtækja. Fjölmiðlar vestra segja ástæðuna fyrir því þann mikla kostnað sem samruni fyrirtækja muni hafa í för með sér og horfi þeir til þess að taka sneið af kökunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×