Viðskipti erlent

1,9 prósenta verðbólga á evrusvæðinu

Verðbólga á evrusvæðinu mældist 1,9 prósent í maí, sem er óbreytt frá fyrri mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð sem verðbólga helst óbreytt og í takt við væntingar greinenda.

Þá eru verðbólgutölurnar sömuleiðis samhljóða verðbólguspá seðlabanka Evrópu, sem gerir ráð fyrir því að verðbólga haldist undir 2,0 prósenta markinu árið á enda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×