Federer hlakkar til Opna franska 20. maí 2007 18:30 Roger Federer með bikarinn sem hann fékk í dag fyrir sigurinn í Hamborg. MYND/Getty
Tenniskappinn Roger Federer er í skýjunum með að hafa yfirstigið þá hindrun sem Rafael Nadal er fyrir hann á leirvelli, en fyrr í dag hafði Svisslendingurinn betur í úrslitaleik meistaramótsins í Hamborg. Federer kveðst ekki geta beðið eftir að hefja leik á Opna franska, þar sem leikið er á leir-yfirborði, en það hefst næsta sunnudag. “Þetta var mikil hindrun sem ég náði að komast yfir í dag,” sagði Federer á blaðamannafundi eftir úrslitaviðureignina í dag. Fram að henni hafði hinn spænski Nadal unnið 81 leik í röð á leir, en síðast tapaði hann á því yfirborði í apríl 2005. Nadal hafði meðal annars unnið Federer í síðustu fimm skiptin sem þeir félagar hafa mæst á leir. “Það verður áhugavert að sjá hvernig við báðir bregðumst við þessum úrslitum á Opna franska,” sagði Federer, en hann hefur unnið 10 stórmót á ferlinum, þó aldrei það Opna franska. Þar hefur Nadal borið sigur úr bítum síðustu tvö ár. “Sigurinn er auðvitað ákveðinn áfangi en fyrir mér er mikilvægast að vera byrjaður að spila vel á ný. Mér líður mjög vel og ég hlakka mikið til mótsins í Frakklandi. Ég get ekki beðið.”
Erlendar Mest lesið Boltastrákur hjálpaði markverði að verja víti Fótbolti Landsleik Svía og Rúmena hætt eftir svakalegt samstuð leikmanna Handbolti Uppgjör: Tindastóll-Keflavík 116-79 | Keflvíkingar rassskelltir á Króknum Körfubolti Neuer meiddist við að fagna marki Fótbolti „Ég get alltaf stólað á Collin“ Körfubolti Daníel Ingi í sextánda sæti á EM: „Hefði viljað stökkva lengra“ Sport „Vorum virkilega virkilega þreyttir síðasta hálftímann“ Fótbolti „Ég veit ekki hvort menn eru farnir að horfa of langt fram á við“ Körfubolti Orri klúðraði dauðafæri og Man United slapp í burtu með jafntefli Fótbolti Uppgjör: Höttur-Þór Þ. 103-95 | Fallnir Hattarmenn unnu Þórsara Körfubolti Fleiri fréttir Boltastrákur hjálpaði markverði að verja víti Daníel Ingi í sextánda sæti á EM: „Hefði viljað stökkva lengra“ Neuer meiddist við að fagna marki Uppgjör: Tindastóll-Keflavík 116-79 | Keflvíkingar rassskelltir á Króknum Landsleik Svía og Rúmena hætt eftir svakalegt samstuð leikmanna „Ég get alltaf stólað á Collin“ „Vorum virkilega virkilega þreyttir síðasta hálftímann“ „Ég veit ekki hvort menn eru farnir að horfa of langt fram á við“ Uppgjör: Höttur-Þór Þ. 103-95 | Fallnir Hattarmenn unnu Þórsara Uppgjörið: Haukar - Valur 81-85 | Kreistu út sigur á síðustu stundu gegn föllnum Haukum Uppgjörið: ÍR-KR 97-96 | Collin Pryor tryggði ÍR-ingum sigur á KR Chelsea vann en Tottenham tapaði Sverrir fagnaði sigri á móti Alberti í Sambandsdeildinni Orri klúðraði dauðafæri og Man United slapp í burtu með jafntefli Haukur flottur í sigri á liði Gumma Gumm í Meistaradeildinni Elvar bjó til sjö mörk en liðið missti af sigri í lokin Seinka leik Stólanna og Keflvíkinga Neymar valinn í fyrsta sinn í sautján mánuði Cavs fyrstir til að tryggja sig inn í úrslitakeppnina Enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar og óviss hvort hann keppir á Players Níu mörk þegar KR vann ÍBV FIFA gæti fjölgað liðum í 64 á HM Steig á úðara og meiddist á hné Benedikt hættur með kvennalandsliðið Unnið ensku, frönsku, þýsku og spænsku meistarana án þess að fá á sig mark QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Gunnar kveður og Stefán tekur við Spilaði leik sama dag og hann viðurkenndi að hafa orðið manni að bana Sjáðu vörslurnar hjá Alisson: „Fáir sem stugga við honum“ Utan vallar: Fegurðin í því að stúta og stela Sjá meira