Viðskipti erlent

Óttast hrun á kínverskum hlutabréfamarkaði

Kauphöllin í Sjanghæ í Kína.
Kauphöllin í Sjanghæ í Kína. Mynd/AFP

Óttast er að hrun vofi yfir kínverskum hlutabréfamarkaði. Þetta segir bandaríski fjárfestingabankinn Goldman Sachs í nýútkominni skýrslu þar sem bent er á að kínverska hlutabréfavísitalan standi í methæðum. Ástæðan er kaupæði á kínverskum hlutabréfamarkaði. Þurfi að leiðrétta gengi vísitölunnar, að mati bankans.

Í skýrslunni segir að ofurbjartsýni fjárfesta í Kína hafi þrýst gengi hlutabréfa langt upp fyrir það sem eðlilegt er og beri markaðurinn öll merki þess að bóla sé í vændum á markaðnum sem geti sprungið hvenær sem er.

Hlutabréfavísitalan í kauphöllinni í Sjanghæ í Kína hefur verið á hraðri uppleið síðustu vikurnar og rauf 4.000 stiga múrinn í gær.

Stjórnvöld í Kína gerðu tilraun til þess að hægja á hlutabréfaveltu í síðustu viku meðal annars með því að setja reglugerð þess efnis að öll fyrirtæki verði að fá samþykki hluthafa sinna ætli þau að kaupa hlutabréf í öðrum félögum sem skráð eru á markað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×