Viðskipti erlent

Tap hjá EasyJet

Flugvélar undir merkjum EasyJet.
Flugvélar undir merkjum EasyJet.

EasyJet, annað stærsta lággjaldaflugfélag í Evrópu, skilaði tapi upp á 12,7 milljónir punda, jafnvirði rétt rúmra 1,6 milljarða íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Þetta er engu að síður betri afkoma en í fyrra en þá nam tap fyrirtækisins 28,9 milljónum punda, 3,7 millörðum króna. Félagið segir hærri álögur á farþega vegna síhækkandi stýrivaxta hafa komið niður á hagnaðinum.

Farþegafjöldi EasyJet jókst um 11 prósent á milli ára.

Tekjur námu 719 milljónum punda á tímabilinu sem er 14 prósenta hækkun á milli ára.

Andy Harrison, forstjóri EasyJet, segir að inn í afkomutölurnar spili harðnandi samkeppni auk þess sem umræðan um umhverfismál hafi skilaði sér í því að flugfarþegar séu tvístígandi um flugferðalög. Þá jók ríkisstjórn Bretland enn þrýsting sinn á flugfélög í febrúar með tvöfalt hærri umhverfisskatti en áður.

FL Group átti 17 prósenta hlut í EasyJet í um eitt og hálft ár en seldi hann fyrir ári fyrir um 29 milljarða krónur með 13 milljarða króna hagnaði. Þykir þetta ein besta fjárfesting FL Group til þessa.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×