Viðskipti erlent

Smásöluverslun jókst um 0,7 prósent í Bandaríkjunum

Viðskiptavinur kemur úr einni af verslunum Wal-Mart í Bandaríkjunum.
Viðskiptavinur kemur úr einni af verslunum Wal-Mart í Bandaríkjunum. Mynd/AFP

Smásöluverslun jókst um 0,7 prósent á milli mánaða í mars í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna. Greinendur segja þetta koma efnahagslífinu til góða og vega upp á móti samdrætti í iðnaði og á húsnæðismarkaði vestanhafs.

Til samanburðar jókst smásöluverslun um 0,5 prósent á milli mánaða í febrúar, sem var umfram væntingar greinenda.

Fréttaveita Bloomberg hefur eftir greinendum í dag að stjórnvöld líti björtum augum á tölurnar því upplýsingar um einkaneyslu í landinu standi á bak við rúmlega 60 prósent af af landsframleiðslu. Þessu til viðbótar hefur atvinnuleysi ekki verið með minna móti í sex ár auk þess sem kaupmáttur launa hefur aukist. Þykir þetta minnka líkurnar á því til muna að Seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti á næstunni. Þvert á móti ýjaði Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna, í síðustu viku að svo geti farið að hækka þurfi stýrivextina til að draga úr verðbólguþrýstingi.

Í nýjustu hagvísum bandarísku hagstofunnar kemur meðal annars fram að kaup á bílum og fatnaði leiði aukningu í smásöluverslun í mánuðinum. Sala á fatnaði jókst um 2,4 prósent á milli mánaða og sala á íþróttavörum jókst um 1,1 prósent. Sala á þessum vöruflokkum hefur ekki verið betri síðan í janúar í fyrra. Þá jókst sala á bílum um 0,8 prósent á milli mánaða í Bandaríkjunum.

Að sögn Bloomberg hefur samdráttur á fasteignalánamarkaði vestanhafs ekki haft teljandi áhrif á hagkerfið líkt og menn óttuðust og er því gert ráð fyrir „hóflegum" hagvexti á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×