Viðskipti erlent

Nasdaq sagt hafa boðið í OMX

Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq.
Robert Greifeld, forstjóri Nasdaq. Mynd/AFP

Gengi hlutabréfa í norrænu kauphallarsamstæðunni OMX hækkaði um heil 13 prósent við opnun markaða í morgun eftir að sænska dagblaðið Dagens Industri sagði að bandaríski hlutabréfamarkaðuinn Nasdaq hefði lagt fram yfirtökutilboð í norrænu kauphöllina fyrir hálfum mánuði. OMX segir svo ekki vera.

Dagens Industri segir tilboð Nasdaq hljóða upp á 23 milljarða sænskra króna, jafnvirði 221 milljarðs íslenskra króna. Það jafngildir 192 sænskum krónum fyrir hvern hlut í OMX, sem rekur kauphallir í Eystrasaltslöndunum og á Norðurlöndunum að Noregi undanskildu. Kauphöll Íslands heyrir undir OMX.

Niclas Lilja, talsmaður OMX, neitar fréttum þessa efnis og vildi ekki tjá sig um orðróm. OMX sagðist ennfremur hvorki hafa fengið formlegt né óformlegt yfirtökutilboð frá Nasdaq. Hins vegar séu viðræður í gangi við nokkra hlutabréfamarkaði um samstarf.

Gengi hlutabréfa í OMX tók kipp upp á við í fyrstu viðskiptum dagsins og fór hæst upp um 17 prósent. Það lækkaði nokkuð þegar á leið morguninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×