Viðskipti erlent

Spá lækkunum á bandarískum fasteignamarkaði

Nýbygging í Miami í Bandaríkjunum.
Nýbygging í Miami í Bandaríkjunum. Mynd/AFP

Nokkrar líkur eru á að húsnæðisverð muni lækka á þessu ári í Bandaríkjunum. Verði það raunin er þetta í fyrsta sinn sem slíkt gerist að ráði í 38 ár, samkvæmt Landssamtökum verktaka í Bandaríkjunum. Helsta ástæðan fyrir lækkununum er samdráttur í fasteignakaupum og á fasteignalánamarkaði vestra.

Fasteignaverð byrjaði að lækka nokkuð í Bandaríkjunum í fyrra, sér í lagi í Miðvesturríkjunum þar sem verðið fór niður um 2,0 prósent. Gert er ráð fyrir því að hækkana verði vart á þeim svæðum sem hafa lækkað mest fram til þessa.

Lækkanirnar sem gert er ráð fyrir að verði á þessu ári eru almennari. Þær eru hins vegar ekki jafn miklar eða að meðaltali um 0,7 prósent á landsvísu, að sögn samtakanna.

Walter Molony, talsmaður Landssamtaka verktaka í Bandaríkjunum, segir í samtali við bandaríska netmiðilinn IndyStar, að gangi spáin eftir muni þetta vera í fyrsta sinn síðan árið 1968 sem fasteignir lækki í verði svo nokkru nemi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×