Viðskipti erlent

Yfirtakan á Sainsbury að fara út um þúfur?

Ein af verslunum Sainsbury.
Ein af verslunum Sainsbury. Mynd/AFP

Miklar líkur eru á því að Sainsbury-fjölskyldan, stærsti einstaki hluthafinn í bresku stórmarkaðakeðjunni Sainsbury með 18 prósenta hlut, muni hafna yfirtökutilboði fjárfestasjóðsins CVC Capital Partners í dag eða á morgun. Verði það raunin er talið er ekkert verði úr yfirtökunni, sem staðið hefur fyrir dyrum síðan í byrjun febrúar.

Yfirtökukapphlaupið hefur hangið á bláþræði síðan skömmu fyrir páska þegar einn fjárfestasjóður af fjórum sem stóðu á bak við það sagði sig úr hópnum til að einbeita sér að annarri stórri yfirtöku. Tveir til viðbótar drógu sig í hlé í gær.

Sainsbury-fjölskyldan sagði fyrir páska að öllum tilboðum undir 600 pensum á hlut yrði hafnað. Fyrir lá óformlegt tilboð upp á 562 pens á hlut. Sjóðirnir hækkuðu það um 20 pens um páskana og setur það 10,1 milljarðs punda, 1.350 milljarða króna, verðmiða á keðjuna alla.

Netmiðill bandaríska tímaritsins Forbes hefur eftir breskum heimildamönnum í dag að Sainsbury-fjölskyldan muni að öllum líkindum senda frá sér tilkynningu um tilboðið síðar í dag eða á morgun.

Þá hefur tímaritið eftir breskum fjölmiðlum að þar sem CVC Capital Partners sé orðinn einn fjárfestasjóða í kapphlaupinu um Sainsbury-keðjuna séu litlar líkur á að tilboðið verði hækkað.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×