Viðskipti erlent

Kerkorian gerir tilboð í Chrysler

Á myndinni sést Chrysler Crossfire og áhuginn sést vel.
Á myndinni sést Chrysler Crossfire og áhuginn sést vel. MYND/AFP

Milljarðamæringurinn Kirk Kerkorian hefur gert 4,5 milljarða dollara tilboð í Chrysler bílamerkið. Chrysler er sem stendur hluti af DaimlerChrysler samsteypunni en Daimler hefur nú í nokkurn tíma reynt að losa sig við Chrysler þar sem mikið tap hefur verið á rekstri fyrirtækisins.

Kerkorian gerir tilboðið í nafni Tracinda sem er fyrirtæki í hans eigu. Það ætlar sér að styrkja og byggja upp Chrysler og ætlar sér að bjóða þeim sem nú sitja við stjórn í fyrirtækinu að taka þátt í uppbyggingunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×