Golf

Betri dagur hjá Birgi í dag en það dugar varla til

Birgir Leifur Hafþórsson lauk keppni á Opna Portúgalsmótinu í golfi í dag á einu höggi undir pari en ólíklegt má telja að hann komist áfram í gegnum niðurskurðinn þar sem hann er nú í 90. sæti.

Birgir lék afleitlega í gær og var á sjö höggum yfir pari og því er hann samtals á sex höggum yfir pari. Á mótinu í dag lék Birgir fimmtán holur á pari en fékk einn skolla og tvo fugla.

Fjölmargir þátttakendur á mótinu eiga eftir að ljúka leik í dag en aðstæður báða daga hafa verið mjög erfiðar. Aðeins þrettán kylfingar voru á lægra skori en pari eftir fyrsta daginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×