Menning

Munið að sýna skilríkin

Hadda Hreiðarsdóttir skrifar

Ef þú ert 23 ára eða yngri geturðu keypt heila bók á hálfvirði. Bjartur bókaforlag býður nú öllum þeim sem eru 23 ára og yngri að kaupa glænýja kiljuútgáfu SKULDADAGA eftir Jökul Valsson á aðeins hálfvirði. Eina sem þarf að gera er að tölta til næsta bóksala og sýna skilríkin.

Spennusagan Skuldadagar kom út um jólin og hlaut einróma lof gagnrýnenda. "Spennandi afþreying þar sem hraðinn er í fyrirrúmi," var dómur eins af hinum virðulegu bókmenntagagnrýnendum fjölmiðlanna um bókina.

Í Skuldadögum kynnist lesandinn Matta, rúmlega tvítugum strák sem vaknar á föstudagsmorgni og uppgötvar að honum hefur fyrir undarlega slysni tekist að glata fíkniefnum sem honum var falið að selja. Nú þarf Matti á allri sinni snilligáfu að halda til að koma sér úr vandræðunum. Hann þarf að finna efnin, rukka inn skuldir, forðast handrukkarar og mæta í lambalæri hjá mömmu, allt á einu bretti, og helgin er bara rétt að byrja...






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.