Viðskipti erlent

Stýrivextir óbreyttir í Bandaríkjunum

Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna.
Ben Bernanke, seðlabankastjóri Bandaríkjanna. Mynd/AFP
Seðlabanki Bandaríkjanna lét í dag stýrivexti óbreytta en viðurkenndi þó að efnahagur landsins hefði veikst og að verðbólga hefði hækkað. Vextirnir verða því áfram 5,25 prósent. Sérfræðingar höfðu búist við því að þetta yrði niðurstaðan.

Stýrivextirnir stjórna vöxtum á millibankalánum í Bandaríkjunum. Þetta var sjötta skiptið í röð sem Seðlabankinn hvorki hækkar né lækkar stýrivextina. Engu að síður telja menn meiri líkur á því að stýrivextir verði hækkaðir í framtíðinni þar sem Seðlabankinn bandaríski virðist hafa meiri áhyggjur af verðbólgu en slælegri frammistöðu hagkerfisins.

Alan Greenspan, fyrrum seðlabankastjóri Bandaríkjanna, hefur lýst því yfir að hann telji um þriðjungslíkur á því að kreppa hefjist í Bandaríkjunum á þessu ári.

Venjulega myndi Seðlabankinn bregðast við hægum hagvexti og fréttum um hugsanlega kreppu með því að lækka stýrivexti en þar sem verðbólga hefur aukist hraðar en gert var ráð fyrir hefur bankinn ákveðið að halda stýrivöxtum í sama horfi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×