Erlent

Fréttamanni BBC rænt

Alan Johnston fréttaritara breska ríkisútvarpsins BBC í Palestínu var rænt á Gaza í dag. Lögreglan segir ekki ljóst hverjir standa á bakvið ránið. Heimildarmenn staðfestu að maðurinn væri Alan Johnston, en bílaleigubíll hans fannst í Gasaborg. Johnston er breskur ríkisborgari. Lögreglan vinnur nú að rannsókn mannránsins.

Í janúar var perúvískum fréttamanni frá AFP fréttastofunni rænt á Gasa. Honum var sleppt eftir eina viku og var ómeiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×