Menning

Skuldadagar

Bjartur gefur út bókina Skuldadagar eftir Jökul Valsson
Bjartur gefur út bókina Skuldadagar eftir Jökul Valsson

Söguhetja Skuldadaga er Matti, hálflánlaus náungi, sem ætlar þó svo sannarlega að kippa sínu í lag. Hann þarf bara smá tíma og smá pening. Þegar hann vaknar á föstudagsmorgni og uppgötvar að honum hefur, fyrir undarlega slysni, tekist að glata fíkniefnum sem honum var falið að selja, verður eigandinn ekki glaður. Nú þarf Matti á allri sinni snilligáfu að halda til að koma sér úr vandræðunum. Hann þarf að finna efnin, rukka inn skuldir, forðast handrukkarar og mæta í lambalæri hjá mömmu, allt á einu bretti, og helgin er bara rétt að byrja...

Jökli Valssyni hefur tekist að spinna bráðlifandi og grátbroslega lýsingu á raunum ungs gæfulauss einstaklings, sem þráir hið ljúfa líf og skjótfenginn gróða en uppsker ekkert nema vandræði sem vinda upp á sig þar til uppgjör er óumflýjanlegt. Jökull vakti mikla athygli fyrir sína fyrstu skáldsögu, hrollvekjuna Börnin í Húmdölum, og kemur nú á óvart með kraftmikilli samtímasögu úr Reykjavík.

"Bráðskemmtileg bók sem heldur fínu jafnvægi milli tilgerðarleysis og húmors." Mbl. 3. nóv



"Spennandi afþreying þar sem hraðinn er í fyrirrúmi" Þórunn Hrefna, Víðsjá, 22. nóv

Það er Bjartur sem gefur þessa bók út í kilju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.