Erlent

18 börn létust í bílasprengju

Drengur liggur á sjúkrahúsi með minniháttar meiðsl eftir sprengjutilræði í Baghdad í dag.
Drengur liggur á sjúkrahúsi með minniháttar meiðsl eftir sprengjutilræði í Baghdad í dag. MYND/AP

Bílasprengja varð 18 börnum að bana á fótboltavelli í vesturhluta Ramadi borgar í Írak í dag. Þetta er haft eftir sjónvarpsstöðinni Iraqiya. Börnin voru að leik á vellinum þegar sprengjan sprakk, en ekki er ljóst hver er ábyrgur fyrir tilræðinu.

Uppreisnarmenn hafa haldið árásum áfram þrátt fyrir átak bandaríska- og íraska hersins gegn ofbeldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×