Erlent

Skriðufall í miðborg San Francisco

Frá San Francisco borg.
Frá San Francisco borg.

Klettar hrundu af hæð í miðborg San Francisco nú rétt í þessu og skemmdu næstu byggingar. 150 manns voru fluttir úr þremur byggingum við skriðuna. Engin slys hafa verið tilkynnt á fólki, en lögregla og slökkvilið hafa lokað næstu götu af.

KTVU sjónvarpsstöðin hefur eftir talsmanni slökkviliðsins að nokkrir klettar úr hlíðinni hafi fallið niður við Broadway stræti og skemmt íbúðarhús og verslunarbyggingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×