Erlent

Níu látnir í Baghdad

Stúlka lítur út um skemmdan glugga á heimili sínu eftir bílasprengju í Karradah í Baghdad.
Stúlka lítur út um skemmdan glugga á heimili sínu eftir bílasprengju í Karradah í Baghdad. MYND/AP

Að minnsta kosti níu létust og 25 slösuðust í þremur sprengingum í Bagdhad í Írak í dag. Haft er eftir lögreglu að fimm hafi látist og tíu slasast þegar bílsprengja sprakk í Karrada hverfinu í miðborginni. Tveir til viðbótar létust í sama hverfi í annarri bílasprengju þar sem fjórir slösuðust. Þá létust tveir í sprengju á vegi við Tayaran torg í miðborginni og ellefu slösuðust.

Uppreisnarmenn hafa haldið árásum áfram þrátt fyrir átak bandaríska- og íraska hersins gegn ofbeldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×