Menning

Funheitt gróðurhús eða brunagaddur ísaldar?

MYND/www.ust.is

Ólafur Ingólfsson, prófessor, mun halda fyrirlestur um ransóknir á veðurfarssögu jarðarinnar síðutu 650 milljón ára, á morgun laugardag. Verður fyrirlesturinn haldinn í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, í sal 132 og hefst hann klukkan 14:00.

Þetta er fyrsti fyrirlesturinn í fyrirlestrarröð Raunvísindadeildar Háskóla Íslands sem ber heitið Undur veraldar og er haldin í tilefni af ári jarðarinnar 2008.

Rannsóknir á veðurfarssögu jarðar síðustu 650 milljón ára sýna að hitafar á heimsmælikvarða sveiflast milli tveggja öfga. Annars vegar eru löng tímabil þar sem mjög hlýtt er um jörðina og hins vegar eru styttri tímabil fimbulkaldra ísalda. Hlýju tímabilin einkennast af gróskumiklu lífi og hárri sjávarstöðu, en ísaldirnar markast af minni lífauðgi og mikilli útbreiðslu jökla, sérstaklega á háum- og miðlægum breiddargráðum.

Í erindinu verður skýrt frá helstu gögnum sem endurspegla veðurfarssögu jarðar. Orsakir þessara öfgakenndu sveifla, frá funheitu gróðurhúsaloftslagi til brunagadds ísalda, verða skýrðar. Leidd verða rök að því að núverandi hlýskeiði sé að ljúka og nýtt jökulskeið sé handan sjóndeildarhringsins.

Undur veraldar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.