Sport

Superbowl á morgun

Stærsti viðburður bandaríska íþróttaársins er á morgun þegar 41. Superbowl-leikurinn fer fram í Flórída. Liðin sem mætast eru Indianapolis Colts og Chicago Bears. Liðin hafa hvorugt komist í úrslitaleikinn í áratugi, Bears léku síðast Superbowl-leik fyrir meira en 20 árum en Colts, sem þá hétu Baltimore Colts, léku síðast Superbowl-leik fyrir 36 árum.

Tony Dungy, þjálfari Colts og Lovie Smith þjálfari Bears eru gamlir vinir og það verður spennandi að sjá hversu miklir kærleikar verða með þeim á morgun. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsendingin klukkan 22:45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×