Sport

Williams ekki dauð úr öllum æðum

NordicPhotos/GettyImages
Bandaríska tennisdrottningin Serena Williams sýndi gamalkunna seiglu í nótt þegar hún skellti fimmtu stigahæstu tenniskonu heims, Nadiu Petrovu, 1-6, 7-5 og 6-3 í æsilegum leik á opna ástralska meistaramótinu. Williams er því komin í fjórðu umferð mótsins.

Þá er útlit fyrir að þær Amelie Mauresmo og Svetlana Kuznetsova mætist í undanúrslitum í kvennaflokki eftir að Mauresmo vann auðveldan sigur á tékknesku stúlkunni Evu Birnerovu 6-3 og 6-1 og Kuznetsova lagði löndu sinni Mariu Kirilenko frá Rússlandi 6-1 og 6-4. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×