Erlent

Viltu eitt eða tvö egg ?

Gulli göltur hefði betur setið heima.
Gulli göltur hefði betur setið heima.

Bóndinn var ekki heima þegar þrjú svín brutust út úr stíu sinni á býli hans, sem er í Temerin í Serbíu, um sjötíu kílómetra norðvestan við Belgrad. Svínin röltu sér inn í íbúðarhúsið til að skoða sig um. Þar velti eitt þeirra um sjónvarpstæki með miklum látum. Þegar sjónvarpið skall í gólfið kviknaði í því og eldurinn breiddist fljótt um allt húsið.

Þegar bóndinn kom aftur var bærinn hans brunninn til grunna. Sem betur fór meiddist ekkert af heimafólkinu. Hvað svínin varðar er ljóst að bóndinn mun borða beikon næstu vikur og mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×