Erlent

Snyrtilegi pissuskálaþjófurinn

Breska lögreglan leitar nú að manni sem stal pissuskálinni af Royal Oak pöbbinum í Southampton. Maðurinn kom þar inn, pantaði sér hálfpott af bjór og fór nokkrar ferðir á klósettið. Á öryggismyndavél sést hann svo troða skálinni í bakpoka sinn og fara með hana út.

Lögreglan segir að pissuskálin hafi verið fagmannlega fjarlægð, þjófurinn hafi skrúfað fyrir vatnið og skilið allt mjög snyrtilegt eftir sig. Giskað er á að hann sé pípari sem vinni svart, og hafi verið að ná sér í varahluti eftir pöntun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×