Erlent

Nýju ári og ESB aðild fagnað

Flugeldar lýstu upp nýársnóttina víðar en á Íslandi. Skoteldar tóku á móti nýju ári í Lundúnum, Berlín og Búkarest. Á síðastnefnda staðnum var þó einnig verið að fagna inngöngu í Evrópusambandið en á miðnætti urðu Búlgarar og Rúmenar aðilar að bandalaginu og sambandsríkin eru því orðin 27.

Viðræðum við stjórnvöld í Sofíu og Búkarest lauk árið 2004 og það var svo í september síðastliðnum sem framkvæmdastjórn ESB lýsti því yfir að aðlögunarferli væri lokið og ríkin gætu gengið í sambandið.

Það mátti vart á milli sjá hvort fólk fagnaði frekar nýju ári eða sambandsaðild í nótt. Einn íbúi í Sofíu sagði þetta sögulega stund og yndislega nótt. Íbúar í Búlgaríu geri sér nú vonir og bjartari og betri framtíð.

En nýja árið var nægilegt fagnaðarefni annars staðar í heiminum. Talið er að rúmlega milljón manns hafi komið saman á Times-torgi í New York og talið niður í 2007. Í Lundúnum fögnuðu rúmlega hundrað þúsund manns um leið og Big Ben hringdi inn nýtt ár á miðnætti. Tíu mínútna flugeldasýning tók síðan við. Engin formlega hátíðarhöld voru skipulögð í París í Frakklandi í nótt. Það kom ekki í veg fyrir fjölmenn fagnaðarlæti á Champs-Elysee. Nýju ári var tekið fagnandi við Brandenborgar-hliðið í Berlín þar sem efnt var til rokktónleika í gærkvöldi.

Þegar birta tók af degi í morgun lögðust flestir skemmtanaglaðir karlar og konur til hvílu víða um heim. Þá risu trúaðir úr rekkju og hlýddu á boðskap Benedikts sextánda páfa á Péturstorginu í Róm. Í nýárávarpi sínu lagði páfi áherlsu á að í dag væri alþjóðlegur friðardagur. Hann hvatti þjóðir heims til að leggja sitt af mörkum svo frið mætti ná í heiminum og lagði að fólk að hafna stríði og ofbeldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×