Heilsa

Sólargeislabrauð með saffrani

Uppskrift að lúsíubrauði

125 g smjör

5 dl af mjólk

2 teskeiðar (50 g) af geri

½ teskeið af salti

1 dl af sykri (má nota annað sætt)

1 g af saffran

2 egg

16 dl af hveiti (má nota spelt)

rúsínur til að skreyta

egg til að pensla



Mjólkin er hituð í potti og smjörið látið bráðna í mjólkinni. Blandan á að vera um 37 gráðu heit. Gerið fer út í blönduna ásamt saffraninu. Sætunni (má vera döðlur, ávaxtamauk, agave-síróp eða banani) er síðan bætt út í blönduna. Eggin eru þeytt sér og bætt út í og þar á eftir hveiti. Deigið er síðan hrært og jafnvel meira hveiti bætt við ef það er of blautt. Stráið hveiti á deigið og leggið yfir hreint viskastykki á meðan það lyftir sér í 30 mínútur og verður tvöfalt. Síðan er deigið hnoðað. Það á að vera ljóst, teygjanlegt og frekar laust í sér. Þá eru brauðin mótuð og sett á smurða ofnplötu. Síðan eiga brauðin að lyfta sér áfram í aðrar 30 mínútur. Þá eru þau pensluð með eggi og skreytt með rúsínum. Brauðið má móta í alls konar form og snúninga. Stundum eru búnir til kransar og fléttur. Brauðið verður fljótt þurrt og því ágætt að frysta það og þíða í ofni þegar á að borða það heitt.








×