Samstarf á netinu gerir útgáfuna mögulega 21. nóvember 2007 00:01 Alles Wieder Offen. Nýjasta plata þýsku framúrstefnusveitarinnar Einstürzende Neubauten. Sveitin hélt hér hljómleika árið 1986 í Roxzý við Skúlagötu í Reykjavík. SH Draumur hitaði upp.
Einstürzende Neubauten tók á tvö hundruð dögum upp nýja plötu í eigin hljóðveri. Útgáfan er fjármögnuð með sölu áskrifta að vefsvæði hljómsveitarinnar www.neubauten.org. Þar komast áskrifendur í margvíslegt efni og upptökur sem ekki fara í almenna dreifingu. Nýja platan, sem heitir Alles wieder offen, kom út rétt fyrir mánaðamótin síðustu. Blixa Bargeld, forkólfur sveitarinnar, gengur svo langt að segja frekari tónlistarútgáfu hljómsveitarinnar háða því að haldið verði uppteknum hætti með samstarfi við aðdáendur. Síðast gaf sveitin út plötu með hefðbundnum hætti árið 2004, en í millitíðinni hafa ótal hliðarverkefni litið dagsins ljós. „Þrátt fyrir að vera gefandi í sjálfu sér og styðja við sköpunarferli Alles wieder offen eru þessu verkefni fyrst og fremst hliðarafurð byltingarkenndrar hugmyndar, sem er veftónleikar okkar á www.neubauten.org. Alles wieder offen er gefin út án nokkurrar aðkomu plötufyrirtækis. Upptökurnar voru fjármagnaðar með sölu áskrifta að www.neubauten.org en áskrifendur fá í staðinn sérstaka styrktarútgáfu (Supporter Edition) af hljómplötunni, ýmist með eða án DVD-disks eftir því hvaða áskriftarleið hefur verið valin. Án áskriftarstuðningsins væri Alles wieder offen ekki til,“ segir Blixa á neubauten-vefnum.
Undir smásjánni Mest lesið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Menning Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið Biður drottninguna að blessa heimilið Tíska og hönnun Vörur sem flugfreyjur kaupa í Bandaríkjunum Lífið Fleiri fréttir Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira