Menning

Fjölbreytt hönnun í Forynju

Sara María ásamt starfsfólki en þau hafa unnið hörðum höndum undanfarna daga við að koma búðinni í stand. Opnun verður í dag.
Sara María ásamt starfsfólki en þau hafa unnið hörðum höndum undanfarna daga við að koma búðinni í stand. Opnun verður í dag.

Forynja nefnist ný búð sem Sara María Eyþórsdóttir opnar í dag en Sara er oftast kennd við búðina Nakta apann sem hún rekur einnig. Í Forynju verður margt spennandi í boði og þar á meðal heimilisvörur eins og koddar og rúmföt sem hönnuð eru af Söru og hennar aðstoðarteymi. „Það verður opnun hérna í dag, tónlistaratriði og léttar veitingar í boði,“ segir Sara en nýja búðin er í Tryggvagötu 16, þar sem verslunin Má Mí Mó var áður til húsa.

„Við verðum með okkar eigin hönnun eins og hefur verið í Nakta apanum auk nýju heimilisvaranna. Einnig verðum við með barnaföt frá hönnuðunum Önnu Rún og Signýju sem báðar eru útskrifaðar úr Listaháskóla Íslands. Svo verðum við með skartgripi frá okkur úr plexigleri en það er á stefnuskránni að bæta silfurskartgripum við.“

Nakti apinn hefur vakið athygli fyrir líflega innanhússhönnun og segir Sara Forynju líka ætla að taka á sig hressilega mynd.

„Í þessari búð er markhópurinn eldri svo hún verður aðeins öðruvísi. Það er ekki ennþá komin mynd á hana, ætli það gerist ekki bara síðasta daginn.“

Búðin opnar klukkan sex og eru allir velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.