Heilsa

Gott ástand á kryddi

Örveruástand hefur batnað á síðustu árum. Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.
Örveruástand hefur batnað á síðustu árum. Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.

Örveruástand á kryddi hefur batnað á síðustu árum samkvæmt eftirlitsverkefni Heilbrigðiseftirlits og Umhverfisstofnunar. Tekin voru 106 sýni af kryddi og kryddblöndum og af þeim voru ellefu sýni yfir mörkum um örverufjölda en þetta kemur fram á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Þetta sýnir að krydd sem selt er í verslunum hérlendis er almennt undir þeim mörkum sem miðað er við varðandi örverufræðileg gæði þess.

 Tíu prósent sýna stóðust þó ekki viðmiðunarmörk vegna myglusveppa og einnig greindust saurkólígerlar langt yfir mörkum í einu sýnanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.