Heilsa

Líkaminn elskar hristinga

Helga Mogensen aðstoðarframkvæmdastjóri á Manni lifandi segir hristinga vera sérlega góða á sumrin og mælir heilshugar með þeim.
Helga Mogensen aðstoðarframkvæmdastjóri á Manni lifandi segir hristinga vera sérlega góða á sumrin og mælir heilshugar með þeim. MYND/hörður

Sumarið er rétti tíminn til að njóta hristinga eða „smooties“ eins og þeir kallast á frummálinu.

Hristingar eru fljótgerðir og ljúffengir, í raun hinn fullkomna skyndmáltíð hvort sem er á morgnanna eða yfir daginn.

Helga Mogensen á Manni lifandi mælir heilshugar með þeim til heilsubóta en bendir um leið á að það sé mikilvægt að setja í þá allt sem líkaminn þarfnast ef þeir eiga að koma í stað máltíða.

„Kroppurinn þarf ákveðin vítamín og steinefni í hverri máltíð og þannig er nauðsynlegt að bæta út í hristinginn próteinum og fleiri nærandi efnum. Líkaminn elskar nefninlega hristinga ef öll góðu efnin eru í þeim,“ segir hún og bendir jafnframt á að hristinga megi bæði gera úr ávaxtasöfum, sojamjólk, hrísmjólk eða öðrum drykkjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.