Tónlist

Sýnir þungarokksþætti á Youtube

Gunnar gerir reglulega þætti um íslenskar þungarokkshljómsveitir.
Gunnar gerir reglulega þætti um íslenskar þungarokkshljómsveitir. MYND/Hörður

Gunnar Guðbjörnsson gerir reglulega þætti um íslenskar þungarokkshljómsveitir og setur þá á heimasíðuna Youtube, einn í hverri viku. Changer reið á vaðið og á eftir henni kom hljómsveitin Severed Crotch. Næst á dagskrá eru síðan Momentum og I Adapt.

„Þetta er efni sem ég hef verið að taka upp á tónleikum í nokkur ár. Ég hef verið mikið í kringum þungarokkshljómsveitir og á helling af efni og ákvað að gera eitthvað í því,“ segir Gunnar Guðbjörnsso um þungarokksþætti sína á Youtube. Hann bætir því við að þættirnir séu einhvers konar uppköst að sjónvarpsþáttum sem hann langi að gera.

„Þetta er búið að vera geggjað. Ég er búinn að fá brjáluð viðbrögð og það hrynur yfir mig „e-mail“ frá fólki sem fílar þetta.“

Gunnar, sem vinnur á auglýsingastofu, hefur nokkra reynslu af sjónvarpsþáttagerð því hann hefur bæðið starfað við þáttinn Sirkus Reykjavík og við sjónvarpsfréttir. Hann segir að þungarokkssenan hér á landi fari mjög stækkandi. „Það er aðallega metall sem er núna að koma upp en það var meira um „hardcore“. Núna er metallinn og dauðarokkið á þvílíkri ferð.“ Þætti Gunnars má finna á slóðinni youtube.com/sirgussi.

Changer, sem var í fyrsta þætti Gunnars, er um þessar mundir að vinna að stórri plötu sem kemur út innan árs. Sveitin hitar síðan upp fyrir bandarísku þungarokkssveitina Cannibal Corpse á tónleikum á Nasa 30. júní. „Þetta er hljómsveit sem við höfum allir hlustað á í mörg ár og berum mikla virðingu fyrir. Það verður mikill heiður að fá að spila með þeim,“ segir Kristján Heiðarsson, stofnandi sveitarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.