Tónlist

Gróska í óperusmíð

Vaxandi áhugi á óperuforminu. Fráfarandi óperustjóri Íslensku óperunnar, Bjarni Daníelsson, er bjartsýnn á framhaldið.
Vaxandi áhugi á óperuforminu. Fráfarandi óperustjóri Íslensku óperunnar, Bjarni Daníelsson, er bjartsýnn á framhaldið. MYND/Heiða

Heimsókn óperustjóra sem halda samráðsfund hér á landi um framtíðarhorfur listgreinarinnar er kærkomið innlegg í umræðu um tónlistarhús og óperuflutning. Í dag verða einnig kynntar þrjár nýjar íslenskar óperur sem eru í smíðum.

Árlegur samráðsfundur óperustjóra í Íslensku óperunni við Ingólfstræti hefst í dag. Það eru óperustjórar og nánustu samstarfsmenn þeirra frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum sem koma saman og er yfirskriftin „nýsmíði óperuverka“.

Nýjar óperur setja mark sitt á starfsemi gamalla og nýrra óperuhúsa austan hafs og vestan. Munu óperustjórarnir bera saman bækur sínar og meðal annars fjalla um aukna nýsmíði ópera sem hefur átt sér stað í Evrópu á undanförnum árum.

Óperustjórarnir á þinginu koma frá Konunglegu dönsku óperunni, Norsku óperunni, Konunglegu óperunni í Stokkhólmi, Gautarborgaróperunni, Óperunni í Malmö, Óperunni í Umeå í Svíþjóð, Finnsku þjóðaróperunni, Lettnesku þjóðaróperunni og Eistnesku þjóðaróperunni. Þeir munu ekki síður ræða þá uppsveiflu sem hefur verið í byggingu óperuhúsa í Evrópu á undanförnum árum og nokkrir þátttakendur á þinginu stjórna nýbyggðum óperuhúsum.

Til dæmis er Konunglega danska óperan í nýju húsnæði, nýtt húsnæði er í smíðum fyrir Norsku óperuna og er áætlað að það opni í apríl 2008. Ekki er langt síðan Finnska þjóðaróperan flutti í nýtt húsnæði sem og Gautaborgar­óperan. Því er heimsókn óperustjóranna hingað kærkomin, beint inn í umræðu hér á landi um tónlistarhús með einhverja möguleika til óperuflutnings og ekki síður þá framtíðarsýn að nýtt óperu- og söngleikjahús rísi í Kópavogi.

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur skipað undirbúningsnefnd fyrir byggingu á húsnæði fyrir Íslensku óperuna í Kópavogi og er nýráðinn óperustjóri, Stefán Baldursson, fulltrúi Óperunnar í nefndinni. Gunnar I. Birgisson, Ómar Stefánsson, og Guðríður Arnardóttir sitja í nefndinni fyrir hönd Kópavogsbæjar og Jón Helgi Guðmundsson fyrir hönd BYKO. Aðrir fjárfestar hafa ekki enn tilnefnt aðila í nefndina en áætlað er að fyrsti fundur verði í næstu viku.

Bjarni segir mikinn áhuga meðal tónskálda og annarra óperulistamanna á að endurskoða óperuformið og færa það meira til nútímans. „Það er víða mikil gróska í óperuritun og það hefur gerst á mjög skömmum tíma,“ segir hann og kveðst afar bjartsýnn á framtíð íslenskrar óperuritunar. „Við Íslendingar erum nú vanalega ekki neinir eftirbátar þegar kemur að nýjum straumum,“ segir hann að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.