Tónlist

Malta vill banna símakosningu

vertigo Olivia Lewis flytur lag Möltu, Vertigo, í undanúrslitum Eurovision.
vertigo Olivia Lewis flytur lag Möltu, Vertigo, í undanúrslitum Eurovision.

Malta hefur óskað eftir því að nokkrum þjóðum frá Austur-Evrópu sem taka þátt í Eurovision verði bannað að taka þátt í símakosningu. Vill Robert Abela, yfirmaður Eurovision á Möltu, að rannsakað verði hvernig kosning þessara þjóða fari fram því stigagjöf margra þeirra sé ekki einungis byggð á kosningu almennings.

Segir hann að fimm til sex aðrar þjóðir hafi verið ósáttar við símakosninguna vegna þess að nágrannaríki kusu hvert annað sama hvernig lagið þeirra hljómaði.

Abela segist hafa fengið fregnir af því hversu mörg stig Malta myndi fá frá ákveðnum þjóðum áður en undanúrslitin fóru fram. Þar féll Malta úr keppni, rétt eins og Ísland. „Ég veit að þetta er ekki 100 prósent símakosning og ég tel að þessar þjóðir hafi áhrif á kosninguna.“

Þjóðverjar hafa einnig gagnrýnt Eurovision-keppnina og segjast ekki sjá tilganginn í því að borga mest allra fyrir keppnina en eiga síðan ekki möguleika á að vinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.