Tónlist

Risaeðlur og fyrsta hanagal

Sveitin hefur gjarnan forgöngu um kynningu nýrra verka hér á landi.
Sveitin hefur gjarnan forgöngu um kynningu nýrra verka hér á landi.

Tónleikaröðin 15:15 hefur komið sér upp aðsetri í Norræna húsinu. Erindið er enn sem fyrr flutningur á nýrri tónlist og á sunnudaginn verða þar frumflutt verk eftir ung tónskáld. Það er hin margverðlaunaða Caput-sveit sem flytur. Þar verða flutt verk eftir Hafdísi Bjarnadóttur, Jón Rúnar Arason, Guðmund Óla Sigurgeirsson og Diönu Rotaru.

Verk Hafdísar, Risaeðla, er lokaverkefni úr tónsmíðadeild Listaháskólans. Risaeðla er verk fyrir fjórtán manna kammersveit, samin út frá átta takta risaeðlu-rokkstefi. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Hafdís góða reynslu í tónsmíðum og gítarleik en hennar vettvangur hefur helst verið á sviði djasstónlistar. Hafdís blandar saman ýmsum stílum.

Jón Rúnar Arason syngur tenór­hlutverk við mörg helstu óperuhús Evrópu. Verk hans, Jökultónar, er unnið við ljóð Auðar Gunnars­dóttur söngkonu og í samstarfi við hana. Verkið „Við fyrsta hanans gal“ eftir Guðmund Óla Sigurgeirsson er svíta íslenskra sveitadansa í útsetningu fyrir lítinn hóp hljóðfæra. Stemningin er ættuð úr ballbransanum. Diana Rotaru er dóttir Doina Rotaru sem var staðar­tónskáld í Skálholti á síðasta ári. Verk Diönu, Symplegade, er fyrir flautu, píanó og slagverk en hugmyndin er ættuð úr grískum goðsögnum.

Efnisskráin er samsett úr verkum sem öll eru með fyrstu verkum tónskáldanna. Stjórnandi Caput verður Guðni Franzson. 15:15 tónleikasyrpan er haldin í samstarfi við Norræna húsið í Reykjavík. Tónleikasyrpan hóf göngu sína árið 2002 að frumkvæði Caput.-pbb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.