Menning

Fransmenn og fjölskyldufjör

Ætli þau séu að lesa franska bók? Í viku bókarinnar verður heilmikið húllumhæ fyrir alla fjölskylduna í Borgarbókasafninu.
Ætli þau séu að lesa franska bók? Í viku bókarinnar verður heilmikið húllumhæ fyrir alla fjölskylduna í Borgarbókasafninu.
Borgarbókasafnið fagnar Viku bókarinnar með fjölbreyttri dagskrá um alla borg. Í dag verður til dæmis efnt til fjölskylduhátíða á vegum safnsins í Árbæ og Grafarvogi auk þess sem heilmikið verður um að vera í Grófarhúsinu við Tryggvagötu.

Þar verða Bókaverðlaun barnanna afhent og leikarar úr sýningunni Abbababb! líta inn og skemmta gestum. Á fyrstu hæðinni verður ennfremur opnuð sýning á verkum eftir nemendur í Myndlistarskólanum í Reykjavík.

Á sunnudaginn kl. 15 stendur safnið fyrir bókmenntagöngu um miðbæinn fyrir börn á aldrinum 5-11 ára þar sem rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Sigrún Eldjárn mun mæta og spjalla við göngufólk um kynni sín af Tjörninni.

Mánudagssíðdegið, á sjálfum degi bókarinnar, verður síðan með frönsku ívafi en þarlendar bókmenntir eru í öndvegi þessi misserin. Þá mæta rithöfundarnir Gerður Kristný og Sigurður Pálsson í Grófarhúsið og segja frá kynnum sínum af Frakklandi. Þá syngur Sigríður Thorlacius frönsk lög við undirleik Steingríms Karls Teague. Dagskráin á mánudaginn hefst kl. 17.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.