Menning

Rætt um Lindgren

Rætt verður um áhrif Astridar Lindgren á barnamenningu fyrr og nú á ráðstefnu í Gerðubergi.
Rætt verður um áhrif Astridar Lindgren á barnamenningu fyrr og nú á ráðstefnu í Gerðubergi.

Ráðstefna um barnabókmenntir og barnamenningu verður haldin í menningarmiðstöðinni Gerðubergi á morgun. Ráðstefnan er að þessu sinni tileinkuð Astrid Lindgren og framlagi hennar til barnamenningar fyrr og nú.

Sérstakur gestur ráðstefnunnar er Helena Gomér sem er yfirmaður barnadeildarinnar Rum för Barn í Menningarhúsi Stokkhólmsbúa. Hún býr að mikilli reynslu á sviði barnamenningar bæði úr leikhús- og kvikmyndaheiminum, auk þess sem hún vann við að koma á fót barnamenningarhúsinu Junibacken, sem tileinkað er Astrid Lindgren og sænskum barnabókmenntum.

Í fyrirlestri sínum miðlar hún af reynslu sinni og síðan mun Ragnheiður Gestsdóttir, fundarstjóri ráðstefnunnar og talsmaður Samtaka um barnamenningarstofnun, leiða umræður.

Silja Aðalsteinsdóttir og Sigþrúður Gunnarsdóttir fjalla um líf og rithöfundarferil Lindgren og Katrín Jakobsdóttir heldur fyrirlestur sem hún kallar „Villta barnið og siðmenningin“ þar sem hún fjallar um eina af frægustu söguhetjum skáldkonunnar, Línu langsokk.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Borgarbókasafn Reykjavíkur, Félag skólasafnakennara, IBBY á Íslandi, Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur og Upplýsingu - Félag bókasafns- og upplýsingafræða.

Dagskráin hefst kl. 10.30 á morgun og er aðgangur ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.