Hergagnaframleiðsla í dýraríkinu 26. febrúar 2007 10:48 Í síðustu viku bárust skuggalegar fréttir úr myrkviðum Senegals. Dýra- og mannfræðingar sem voru þar að njósna um lifnaðarhætti sjimpansa komust að því að þessir frændur okkar eru ekki jafnsaklausir og þeir vilja vera láta. Með földum myndavélum tókst vísindamönnunum að festa á filmu að það sem hingað til hefur verið talið saklaust föndur eða leikur með trjágreinar er í raun og veru stórfelld framleiðsla á hergögnum sem aparnir nota í árásarskyni. Í 22 TILVIKUM hafa sjimpansarnir í Senegal verið staðnir að því að naga endann á trjágreinum, ydda þær og breyta í hættuleg lagvopn eða spjót. Spjótin nota aparnir síðan til þess að reka inn í holur þar sem hinir smávöxnu og friðsömu náttapar (otelemur crassicaudatus) hvíla í fasta svefni og eiga sér ekki ills von. Eitt dráp hefur verið staðfest þegar sjimpansa-apynja rak spjót sitt inn í holu og gekk spjótið í gegnum náttapa sem árásaraðilinn dró síðan út úr fylgsninu og át með húð og hári. HINGAÐ TIL hefur verið talið að maðurinn (homo sapiens) væri eina dýrategundin sem hefði náð nægilegum andlegum þroska til að smíða sér vopn til að auðvelda sér að ganga milli bols og höfuðs á öðrum lífverum. Að vísu telja Bandaríkjamenn að arabar séu að auðga úran í Íran í illum tilgangi en það athæfi hefur ekki náðst á filmu eins og hið augljósa hernaðarbrölt sjimpansanna í Senegal. Á ÞESSARI stundu er ekki hægt að segja til um hvernig Bush forseti og Bandaríkjastjórn muni bregðast við þeirri óvæntu ógn sem mannkyninu stafar af þessu löglausa framferði sjimpansanna í Senegal. Sjálfir vilja þeir meina að spjótaframleiðslan sé aðeins liður í því að bæta almenn lífskjör tegundarinnar en óhjákvæmilega verður að skoða þetta óhugnanlega mál í víðara samhengi með tilliti til varanlegs friðar í heiminum. Þeir sem vegast á með spjótum í dag eru vísir til þess að auðga úran á morgun og skrifa nafnlaus bréf hinn daginn og allir vita að það verður ekki lengi líft í veröldinni ef fleiri dýrategundir en homo sapiens ná mannlegum þroska. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk? Ragna Sigurðardóttir Skoðun Stalín á ekki roð í algrímið Halldóra Mogensen Skoðun Sorrý, Andrés Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Borgin græna og ábyrgðin gráa Daði Freyr Ólafsson Skoðun Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar Skoðun Gamalt vín á nýjum belgjum Guðbjörg Sveinsdóttir Skoðun Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni? Sigurður Ragnarsson Skoðun Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi Svandís Edda Halldórsdóttir Skoðun Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun
Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk? Ragna Sigurðardóttir Skoðun
Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar Skoðun
Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni? Sigurður Ragnarsson Skoðun
Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk? Ragna Sigurðardóttir Skoðun
Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar Skoðun
Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni? Sigurður Ragnarsson Skoðun