Erlent

Saddam kveður ættingja

Saddam Hussein.
Saddam Hussein. MYND/AP

Saddam Hussein hefur kvatt tvo bræðra sinna, að sögn lögfræðings forsetans fyrrverandi. Bræðurnir eru geymdir í öðru fangelsi en Saddam, en fengu að koma í heimsókn til hans, undir ströngu eftirliti.

Misvísandi fréttir eru um hvenær Saddam Hussein verður tekinn af lífi. Er því jafnvel haldið fram að það verði strax um helgina. Hver svo sem sannleikurinn er, er hann byrjaður að kveðja. Lögfræðingur hans segir að þrátt fyrir stöðuna hafi fundur bræðranna verið glaðlegur, og Saddam hafi afhent þeim bréf til fjölskyldunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×