Erlent

Danski sjóliðinn jarðsettur

Danski sjóliðinn Jan Nordskov Larsen af varðskipinu Triton, var jarðsettur í Kaupmannahöfn í dag. Larsen drukknaði við björgunaraðgerðir þegar flutningaskipið Wilson Muuga strandaði rétt hjá Sandgerði. Varnarmálaráðherra Danmerkur og yfirmenn úr hernum voru viðstaddir útförina, ásamt fjölskyldu og vinum Jans Nordskov.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×