Erlent

Ha, við danskir ?

Nú eiga Danir að gerast Skandinavar.
Nú eiga Danir að gerast Skandinavar. MYND/AP

Ráðgjafanefnd danska utanríkisráðuneytisins leggur til að dönsk fyrirtæki hætti að leggja áherslu á danskan uppruna sinn í viðskiptum við Miðausturlönd. Þess í stað telji þau sig vera skandinavisk.

Ástæðan fyrir þessu eru Múhameðsteikningarnar sem vöktu mikla reiði meðal múslima á sínum tíma. Skýrsla ráðgjafanefndarinnar er hluti af efni sem dönsk stjórnvöld hafa til þess að vinna úr, við undirbúning á alþjóðlegri markaðssetningu Danmerkur, sem á að hefjast á næsta ári.

Ekki líst öllum vel á þessar tillögur. Þannig sagði talskona danska Þjóðarflokksins að hún hefði aldrei heyrt aðra eins vitleysu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×