Erlent

Hættir öllu samstarfi

Yfirvöld í írösku hafnarborginni Basra eru hætt samstarfi við breskar hersveitir eftir að hermenn leystu upp rannsóknardeild lögreglunnar í borginni og eyðilögðu höfuðstöðvar hennar. Vel á annan tug manna lét lífið í bílsprengjuárásum í Bagdad í morgun.

Yfir eitt þúsund breskir hermenn tóku þátt í þessum óvenjulegu aðgerðum í Basra á mánudaginn en þá var sú deild lögreglunnar sem fer með rannsókn alvarlegra glæpa leyst upp, 127 fangar í hennar haldi frelsaðir og höfuðstöðvar hennar loks sprengdar í loft upp. Að sögn yfirmanns hersveitanna hafi þetta verið gert eftir að áreiðanlegar vísbendingar bárust um að lögreglumenn hygðust þá og þegar taka fangana af lífi. Hann bætti því svo við að stjórnmál svæðisins væru oft flókin en aðgerðirnar hefðu verið með vitund og vilja héraðstjórnarinnar í Basra og írösku ríkisstjórnarinnar. Þremur dögum fyrir áhlaupið höfðu Bretarnir handtekið nokkra lögreglumenn vegna gruns um spillingu og morð. Fangarnir sem frelsaðir voru í gær eru sagðir bera merki um pyntingar. Sjö lögreglumenn létu lífið í áhlaupinu og segja borgaryfirvöld það hafa verið með öllu ólöglegt.

Róstusamt hefur verið venju samkvæmt í Írak í morgun en í það minnsta fimmtán manns létu lífið í röð bílsprengjuárása á markaðstorgi í höfuðborginni Bagdad. Yfir sextíu manns slösuðust, þorri þeirra saklausir borgarar. Fyrr um morgunin dóu þrír bandarískir hermenn í sprengjuárásum skammt utan við Bagdad.

Bandarískir fjölmiðlar hafa bent á það í dag að jafn margir hermenn hafa fallið í Írak frá því að innrásin var þar gerð vorið 2003 og létu lífið í árásirnar á tvíburaturnana í New York 11. september 2001, eða 2.973. Ein af ástæðum innrásarinnar voru meint tengsl ríkisstjórnar Saddams Hussein og al-Kaída hryðjuverkanetsins sem talin eru hafa staðið á bak við hryðjuverkin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×