Erlent

Dyrum ESB hallað

Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, og Jose Manuel Barroso.
Vanhanen, forsætisráðherra Finnlands, og Jose Manuel Barroso. MYND/AP

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna ákváðu á fundi sínum í morgun að gera hlé á aðildarviðræðum við Tyrkland en ítrekuðu þó að dyr sambandsins myndu áfram standa nýjum ríkjum opnar.

Tveggja daga leiðtogafundi Evrópusambandsins lauk í Brussel í dag og eins og við var að búast voru aðildarviðræðurnar við Tyrkland efst á baugi. Stjórnvöld í Ankara hafa ekki viljað opna hafnir sínar og flugvelli fyrir umferð frá Kýpur fyrr en búið er að tryggja betur stöðu tyrkneska hluta eyjunnar. Við þessa afstöðu vildu leiðtogar ESB-ríkjanna hins vegar ekki sætta sig og ákváðu því að hlé yrði gert á flestum þáttum viðræðnanna þar til breyting yrði á.

Hvað stöðu annarra ríkja varðaði, til dæmis Albaníu og ríkja fyrrum Júgóslavíu, lögðu leiðtogarnir áherslu á að ákvörðunin þýddi ekki að aðildardraumar þeirra væru þar með úti, svo fremi sem þau uppfylltu öll skilyrði um inngöngu. Jose Manuel Barroso, forseti framkæmdastjórnarinnar, bætti því við að gera þyrfti breytingar á stofnunum sambandsins áður en fleiri gætu bæst í hópinn.

Rúmenía og Búlgaría ganga í ESB í næsta mánuði og margir innan sambandsins eru þeirrar skoðunar að við það tækifæri eigi að loka dyrum sambandsins. Niðurstaða fundarins í dag var hins vegar sú að þær haldist opnar eitthvað áfram, en aðeins þó í hálfa gátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×